Bananar eru með bás á Stóreldhúsinu 2024 í Laugardalshöll. Við hlökkum til að fá ykkur í heimsókn, sýningin er opin frá kl .12:00 til 18:00 í dag.
Bananar
Wholesale Import and Export
Reykjavík, Capital Region 61 followers
🍌 Við bjóðum upp á úrval af grænmeti og ávöxtum á góðu verði og stuðlum þannig að bættri lýðheilsu.
About us
Bananar bjóða upp á úrval af gæða grænmeti og ávöxtum á sanngjörnu verði og stuðla þannig að bættri lýðheilsu og velferð samfélagsins.
- Website
-
https://www.bananar.is/
External link for Bananar
- Industry
- Wholesale Import and Export
- Company size
- 51-200 employees
- Headquarters
- Reykjavík, Capital Region
- Type
- Public Company
- Founded
- 1955
Locations
-
Primary
Korngarðar 1
Reykjavík, Capital Region 104, IS
Employees at Bananar
Updates
-
Við hjá Bönunum erum afar stolt af því að móðurfélag okkar, Hagar, skipar sér í hóp þeirra átta fyrirtækja sem standa sig best í loftslagsmálum samkvæmt nýjum sjálfbærnivísi PwC. Sjálfbærnivísir PwC er árlegt yfirlit um hvernig sjálfbærnistarf 50 af stærstu fyrirtækjum Íslands gengur og tekur mið af gæðum upplýsingagjafar, markmiðum og árangri í samdrætti í losun. Bananar og önnur dótturfélög Haga skara fram úr á öllum mörkuðum sem við störfum á. Þessi árangur staðfestir skýra stefnu í umhverfismálum, skuldbindingu við að draga úr losun og leggja okkar af mörkum til sjálfbærari framtíðar. „Við hjá Bönunum munum halda áfram á þessari braut og framtíðarsýn okkar er skýr. Við ætlum að vera leiðandi í innflutningi, sölu og dreifingu á hágæða ávöxtum og grænmeti, innlendu og erlendu, og einnig að vinna það á þann hátt sem styður við umhverfið og eykur virði samfélagsins okkar. Þessi viðurkenning er hvati til að halda áfram að vinna að metnaðarfullum markmiðum okkar í umhverfismálum,“ segir Jóhanna Jónsdóttir framkvæmdastjóri Banana. #Loftslagsmál #Sjálfbærni #Umhverfisstefna #Árangur #Bananar
-
KKÍ og Bónus hafa gert samstarfssamning sín á milli og verður Bónus einn af aðalsamstarfsaðilum KKÍ. Markmið samstarfs KKÍ og Bónus er að gera sýnileika Bónus sem mestan í körfuknattleik á Íslandi og hvetja almenning að versla heilsusamlegar vörur með sérstaka áherslu á ávexti og grænmeti. Við hjá Bönunum erum afar ánægð með áherslu samstarfsins á aukna neyslu ávaxta og grænmetis og þannig efla lýðheilsu landsmanna enn frekar 🍉 🍌 🍎 🥕 🥦
Subway deildin verður Bónus deildin - Vísir
visir.is
-
Áfram sjálfbærniveginn Samþætting sjálfbærni í kjarnastarfsemi Banana er eitt af því sem ný sjálfbærniskýrsla fyrirtækisins sýnir fram á. Starfsfólk Banana hefur alltaf haft sjálfbærni að leiðarljósi í sínu starfi eins og sást vel í fyrstu sjálfbærniskýrslu Banana á síðasta ári. Síðastliðna mánuði hefur svo verið lögð enn meiri áhersla á þessi mál og skýr markmiðasetning ásamt reglubundnum mælingum á árangri verður áfram leiðarljós í sjálfbærnivinnu okkar næstu misseri og ár. Við erum afar stolt af þessari annarri sjálfbærniskýrslu Banana. Skýrsluna má skoða hér: https://lnkd.in/egxNgwH4
-
Takk fyrir komuna Ungar athafnakonur (Young Professional Women in Iceland). Ljósmyndir: Eygló Gísladóttir Matarskreyting: Svana Lovísa Kristjánsdóttir
Það var sérstaklega ánægjulegt að taka á móti UAK (Ungar athafnakonur (Young Professional Women in Iceland) í húsakynnum Banana og fá að kynna starfsemi Haga, Banana (Bananar) og annarra dótturfélaga fyrir þessum flotta hóp ungra kvenna.
-
+3
-
Starfsfólk Banana hefur alltaf haft sjálfbærni að leiðarljósi í sínu starfi en í fyrra unnum við fyrstu samfélagsskýrslu Banana. Skýrslan markaði ákveðin tímamót í vinnu fyrirtækisins að sjálfbærnimálum þar sem skýr markmiðasetning ásamt reglubundnum mælingum á árangri varð leiðarljós í sjálfbærnivinnu okkar. Nú er verið að leggja lokahönd á samfélagsskýrslu 2023 en hún verður kynnt á vormánuðum. Hér má skoða fyrstu samfélagsskýrslu Banana: https://lnkd.in/eMjXHzax