Við áttum afar ánægjulega stund saman á dögunum þegar fulltrúar góðgerðarfélaga, hlauparar, starfsfólk og stuðningsaðilar komu saman á uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka í höfuðstöðvum okkar í Norðurturni. Met var slegið í söfnun áheita í ár og er heildarfjárhæð söfnunarinnar frá upphafi rúmlega 1,8 milljarðar króna. Íslandsbanki er stoltur aðalstuðningsaðili Reykjavíkurmaraþonsins og erum við þakklát þeim góðu viðtökum sem söfnunin hefur fengið í gegnum árin. Þeir fjármunir sem safnast skipta miklu í starfsemi þeirra félaga og samtaka sem njóta góðs af henni. Lesa meira 👉 https://lnkd.in/eyiAEb-J