Hálfrar prósentu vaxtalækkun í jólaskó landsmanna?🎅 Greining Íslandsbanka spáir 0,5% lækkun stýrivaxta við næstu vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans sem birt verður eftir viku. Spáin í heild sinni í Korninu sem kom út fyrr í dag 👉 https://lnkd.in/ehuM3CND
About us
With a history that dates from 1875, Íslandsbanki is an Icelandic universal bank with a strong customer focus. The Bank believes in moving Iceland forward by empowering its customers to succeed - reflecting a commitment to run a solid business that is a force for good in society. Driven by the corporate vision to create value for the future with excellent service, Íslandsbanki’s banking model is led by three business divisions that build and manage relationships with its customers. Íslandsbanki maintains a strong market share with the most efficient branch network in the country, supporting at the same time its customers’ move to more digital services. Um Íslandsbanka: Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýn um að skapa virði til framtíðar með því að veita framúrskarandi þjónustu, vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra.
- Website
-
https://www.islandsbanki.is
External link for Íslandsbanki
- Industry
- Banking
- Company size
- 501-1,000 employees
- Headquarters
- Kópavogur, Capital Region
- Type
- Public Company
- Founded
- 1904
- Specialties
- geothermal energy finance, seafood finance, corporate and investment banking, Retail banking, Leasing and asset based financing, and Investment management services
Locations
-
Primary
Hagasmári 3
Kópavogur, Capital Region 201, IS
Employees at Íslandsbanki
Updates
-
Við trúum því að fjárhagsleg heilsa sé fólgin í betri yfirsýn yfir fjármálin og möguleikanum á að taka upplýstari ákvarðanir. Þess vegna leggjum við mikla áherslu og metnað í fræðslufundina okkar, en í dag kl. 17:00 er fyrsti fundur nóvembermánaðar. Þar mun Jóhann Steinar sérfræðingur á sviði lánastýringar fara yfir grunnatriðin í lestri ársreikninga. Hér má finna upplýsingar um væntanlega fræðslufundi 👉 https://lnkd.in/eustAUxQ
-
Verðbólga heldur áfram að hjaðna samkvæmt nýjustu mælingu Hagstofunnar📉 Í nýju Korni Íslandsbanka fer Greining bankans yfir mælinguna en hér fyrir neðan höfum við dregið saman það helsta. Við bendum á að allir geta skráð sig fyrir Korninu en þar dregur Greining bankans fram mikilvægustu fréttir á mörkuðum og leggur mat sitt á þýðingu þeirra eftir því sem við á hverju sinni. Ef þú vilt fá Kornið sent reglulega 👉 https://lnkd.in/eu6KMQiQ
-
Við áttum afar ánægjulega stund saman á dögunum þegar fulltrúar góðgerðarfélaga, hlauparar, starfsfólk og stuðningsaðilar komu saman á uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka í höfuðstöðvum okkar í Norðurturni. Met var slegið í söfnun áheita í ár og er heildarfjárhæð söfnunarinnar frá upphafi rúmlega 1,8 milljarðar króna. Íslandsbanki er stoltur aðalstuðningsaðili Reykjavíkurmaraþonsins og erum við þakklát þeim góðu viðtökum sem söfnunin hefur fengið í gegnum árin. Þeir fjármunir sem safnast skipta miklu í starfsemi þeirra félaga og samtaka sem njóta góðs af henni. Lesa meira 👉 https://lnkd.in/eyiAEb-J
-
Við erum stolt af því að Íslandsbanki hafi hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2024, sjötta árið í röð. Þessi viðurkenning, veitt af FKA, undirstrikar skuldbindingu okkar til að auka jafnrétti og fjölbreytileika í stjórnunarstöðum. Íslandsbanki hefur frá árinu 2019 verið hluti af sívaxandi hópi fyrirtækja sem vinna að þessu markmiði, og í ár hlutu 130 fyrirtæki viðurkenninguna. Við störfum eftir skýrri jafnréttisstefnu sem hvetur okkur til að gera betur á hverju ári, þannig að við séum áfram hreyfiafl til góðra verka.
-
Korn Íslandsbanka kom út í dag en þar birti Greining bankans nýja verðbólguspá. Gangi spáin eftir mun verðbólga mælast 5,2% í október og undir 5% í árslok. Fróðlegt verður að fylgjast með verðbólgutölum októbermánaðar en þær verða þær síðustu til að líta dagsins ljós fyrir síðustu vaxtaákvörðun ársins.
-
Festi og Olís, dótturfélag Haga, hafa sameiginlega ákveðið að setja eignarhluti félaganna í Olíudreifingu ehf. í formlegt söluferli. Meginstarfsemi Olíudreifingar er birgðahald og dreifing á eldsneyti um land allt. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur verið falin umsjón með söluferlinu.
Hagar hf.: Ákvörðun um að hefja formlegt söluferli á eignarhlutum Olís og Festi í Olíudreifingu ehf.
globenewswire.com
-
Í upphafi vikunnar héldum við Fjármálaþing Íslandsbanka þar sem yfir 350 gestir voru saman komnir á Nordica. Á dagskránni voru ýmis áhugaverð erindi, Kristin Hronn Gudmundsdottir opnaði þingið, Jon Bentsson kynnti ný útgefna þjóðhagsspá Greiningar Íslandsbanka, Runólfur Benediktsson fór yfir framþróun og fjárfestingar í landeldi á Íslandi ásamt því að Jon Kjartan Jonsson frá Samherja Fiskeldi fór yfir uppbyggingu þeirra í landeldi. Að lokum stýrði svo Edda Hermannsdóttir, líflegum pallborðsumræðum. Gestir pallborðsins voru þau Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogsbæjar, Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja, Jón Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka ásamt Finnur Oddsson forstjóra Haga. Við þökkum gestum þingsins kærlega fyrir komuna 💫